Alhliða mild sápa til notkunar til þrifa á öll gólfefni ss. lakkað parket,olíuborið parket kork, flísar, plastparket og fl. Einnig frábært á stál og annað hart yfirborð.
Fyrir lakkaða fleti; setjið 50-100 ml af Euku Clean á móti 10 ltr af volgu vatni, strjúkið yfir með gólfið með rakri moppu en varist að bleyta um of.
Notið Euku Clean aldrei óblandað, þurrktími ca. 30 min Má ekki frjósa
Euku clean er einnig til tilbúið í spray brúsa sem úða má beint á parketið en það er einmitt spray útgáfan sem reynst hefur vel á stál yfirborð
Varúðar og hættumerkingar
Ertir augu Geymist á læstum stað þar sem börn ná ekki til Varist snertingu við augu Berist efnið í augu skal strax skola vandlega með miklu vatni og leita læknis
Inniheldur minna en 5% af neikvæðum yfirborðsvirkum efnum og 5-15% af jákvæðum yfirborðsefnum, rotvarnarefni og ilmefni.
|